Árbæjarsafn

Friðrik Tryggvason

Árbæjarsafn

Kaupa Í körfu

ÁRBÆJARSAFN geymir hluta af minni Reykjavíkur, um það hvernig borgin hefur þróast og úr hvaða umhverfi hún er sprottin. Árbær var lengi vel bóndabýli og stóð langt fyrir utan þéttbýlið í Reykjavík. Síðustu ábúendurnir fluttu þangað árið 1881 og byggðu bæjarhúsin, sem standa þar enn, í kringum aldamótin. Reykjavíkurbær eignaðist jörðina árið 1906 þegar bærinn var að koma sér upp vatnsveitu og tryggja sér vatnsréttindi við Elliðaárnar. MYNDATEXTI: Elsta húsið - Smiðshús stóð áður þar sem nú er Pósthússtræti 15. Það var fyrsta húsið sem flutt var á Árbæjarsafn, árið 1960. Það er einnig elsta húsið sem flutt hefur verið á safnið úr miðbæ Reykjavíkur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar