Breiðablik - Valur

Brynjar Gauti

Breiðablik - Valur

Kaupa Í körfu

ÓVÆNT úrslit urðu á Kópavogsvelli í gærkvöldi þegar Valskonur voru slegnar út úr Bikarkeppni KSÍ af baráttuglöðu Breiðabliksliði. Ólíkt er komið á með liðunum í deildarkeppninni þar sem Valur er á toppnum ásamt KR og hefur ekki tapað leik, en Breiðablik er í 5. sæti með 50% vinningshlutfall. En það er ekki spurt að því í bikarkeppninni og það voru Blikakonur sem voru grimmari og langaði meira til þess að komast í undanúrslitin. Leikurinn var spilaður við kjöraðstæður, frábært veður og mikið af áhorfendum. MYNDATEXTI Óvænt Breiðablik vann óvæntan sigur á Val í átta liða úrslitum bikarsins í gærkvöldi og hér verjast Blikar einni sókn Valskvenna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar