Dragkeppni Íslands

Sverrir Vilhelmsson

Dragkeppni Íslands

Kaupa Í körfu

HELGIN verður helguð Hinsegin dögum og var hátíðahöldunum þjófstartað síðastliðinn fimmtudag þegar dragdrottningar og dragkóngar reyndu með sér í framkomu og útliti. Keppnin fór fram í Loftkastalanum og það var Steini Díva sem stóð uppi sem sigurvegari, klæddur í sitt fínasta púss sem Blær. Steini Díva er ekki ókunnugur þátttöku í keppninni en hann hreppti annað sætið í keppninni bæði í fyrra og árið þar áður. Þetta var í tíunda sinn sem Dragkeppni Íslands er haldin. MYNDATEXTI: Sönn díva - Steini Díva nýtti sér reynslu undanfarinna ára og vann dragkeppnina með miklum yfirburðum sem Blær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar