Gæsluvellir
Kaupa Í körfu
Reykjanesbær | "Það er skemmtilegast að leika með vatnið," svöruðu börnin á gæsluvellinum við Brekkustíg þegar blaðamaður Morgunblaðsins leit þar við í skúraveðrinu á miðvikudag. Skúrirnar nægðu þó ekki til að búa til myndarlega polla, heldur fengu þau vatn úr krananum til að fylla föturnar með. Reykjanesbær hefur á undanförnum árum rekið tvo gæsluvelli yfir sumarið, Brekkustígsvöll og Heiðarbólsvöll. Vellirnir eru opnir frá klukkan 13 til 17 og er þar boðið upp á útiveru og leik undir eftirliti 3 starfsmanna á hvorum stað. Tekið er við börnum frá 2 ára aldri til 6 ára, en eldri börn hafa fengið undanþágu. MYNDATEXTI: Leikir - Kranavatn til að sulla með. Þótt rigning hafi verið af skornum skammti í sumar er nóg vatn í krananum til að fylla föturnar með.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir