Ingibjörg Dögg

Ingibjörg Dögg

Kaupa Í körfu

Allir þurfa á því að halda að hitta annað fólk, eignast vini og kunningja, spjalla saman og gera eitthvað skemmtilegt með öðrum. Deila með öðrum bæði hversdagslegum hlutum og stærri stundum í lífinu. En því miður er það svo að sumir eiga enga vini og eru mikið einir og hafa engan til að fara með í bíó eða gera eitthvað annað sem fólk gerir yfirleitt saman. Slík félagsleg einangrun getur verið af ýmsum ástæðum en hún er ekki af hinu góða og það er nauðsynlegt að brjótast út úr henni. MYNDATEXTI: Framtakssöm - Ingibjörg leggur sitt af mörkum til að hjálpa fólki að brjótast út úr félagslegri einangrun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar