Innipúkinn 2007 - Organ

Innipúkinn 2007 - Organ

Kaupa Í körfu

RAUÐI þráðurinn í dagskrá Iceland Airwaves-hátíðarinnar er óneitanlega að stórum hluta útrás og kynning áhugaverðrar og spennandi íslenskrar hljómlistar. Þá er útrásin vitaskuld einnig mikilvæg kynning á hátíðinni. Í ár hefur Airwaves til að mynda staðið fyrir tónleikum á tónlistarhátíðunum goNorth og Rock Ness í Skotlandi, By:Larm í Noregi og G! Festival í Færeyjum. Nú er svo framundan eitt metnaðarfyllsta útrásarverkefni hátíðarinnar til þessa. Íslensku sveitirnar Seabear, Reykjavík! og Ultra Mega Technobandið Stefán stíga á stokk á sérstöku Iceland Airwaves-kvöldi næsta fimmtudag, hinn 16. ágúst, á C/O POP í Köln í Þýskalandi. Daginn eftir leika svo Hairdoctor og FM Belfast á vegum Airwaves á Public Service hátíðinni í Kaupmannahöfn. MYNDATEXTI: FM Belfast - Sveitin kætir útlönd með tápmikilli spilamennsku.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar