FH bikarmeistari í frjálsum

Halldór Kolbeins

FH bikarmeistari í frjálsum

Kaupa Í körfu

LIÐ FH varð um helgina bikarmeistari í frjálsum íþróttum með sannfærandi hætti. Liðið varð stigahæst bæði í keppni karla og kvenna og jafnaði með þessum titli met ÍR sem hefur unnið bikarkeppnina sautján sinnum. "Það er vissulega gaman að jafna metið en svo tökum við þetta bara á næsta ári líka og komust fram fyrir," sagði Silja Úlfarsdóttir, sem var einn máttarstólpanna í liði FH og ein af stjörnum mótsins. MYNDATEXTI: Bikarmeistarar - Það var ærin ástæða fyrir FH-inga til að fagna á laugardaginn þegar liðið vann sinn sautjánda bikarmeistaratitil í frjálsum íþróttum, en keppt var á Laugardalsvelli. Þetta er 14. bikarmeistaratitill FH í röð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar