Skálholtskirkja

Brynjar Gauti

Skálholtskirkja

Kaupa Í körfu

LÚTA á stærð við fallbyssu blasti við manni þegar inn var gengið í Skálholtskirkju kortéri áður en seinni tónleikar laugardagsins áttu að hefjast. Karl Nyhlin, annar tveggja hljóðfæraleikara sem héldu tónleikana, var á sviðinu að stilla hljóðfæri sitt, nánar tiltekið einskonar bassalútu sem einnig gengur undir nafninu teorba eða chitarrone og er ógnarleg að stærð. MYNDATEXTI: Samhljómur þessara tveggja hljóðfæra var verulega heillandi, að hluta til vegna frábærs hljómburðar kirkjunnar. Almennt talað var spilamennskan í anda tónskáldanna, hann var bæði formfastur og tilfinningaheitur, í senn frjálslegur en einnig agaður og oftast nákvæmur."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar