Veiðimyndir

Einar Falur Ingólfsson

Veiðimyndir

Kaupa Í körfu

"ÞAÐ er mok hér í Selá," sagði Gísli Ásgeirsson í gær en hann er við leiðsögn í Selá í Vopnafirði. "Hér er sex stiga hiti, rigning og norðan hvassviðri en það er ótrúlegt magn af fiski að ganga í ána þessa dagana. Ég á ekki orð yfir magnið af laxinum. Maður trúir þessu ekki. Laxar vaða upp ána, laxar af öllum stærðum, stórlaxar, vænir smálaxar og svo líka pínulitlir. Við erum með fimm laxa kvóta á hverri vakt og flestar stanganna eru núna að taka kvótann á hverri vakt. Þessar átta stangir í ánni hafa verið að veiða um 50 laxa á dag síðustu daga." MYNDATEXTI: Stórlax - Þorsteinn J. Vilhjálmsson býr sig undir að sleppa 100 cm löngum hæng, 20 punda fiski, sem hann veiddi við Steinnes í Vatnsdalsá. Tók laxinn svarta Frances.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar