Umferðartafir á Miklubraut

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Umferðartafir á Miklubraut

Kaupa Í körfu

FLJÚGANDI hálka mætti íbúum höfuðborgarsvæðisins í gærmorgun þegar haldið var af stað út í umferðina og hlaust af á annan tug umferðaróhappa með tilheyrandi töfum og fólki til mikillar armæðu. Urðu margir seinir til vinnu en að sögn lögreglunnar var ástandið í gærmorgun víða slæmt, ekki síst í úthverfum, t.d. Breiðholti og Grafarvogi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar