Speglun og lygn sjór við Reykjavíkurhöfn í næturhúminu

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Speglun og lygn sjór við Reykjavíkurhöfn í næturhúminu

Kaupa Í körfu

SAMSON Properties, fasteignafélag í eigu feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur sent stjórn Faxaflóahafna erindi þar sem lýst er áhuga á að kaupa verbúðirnar við Geirsgötu og jafnvel fleiri fasteignir á því svæði. Á fundi í vikunni var hafnarstjóra falið að ræða við fulltrúa Samson Properties um hugmyndir félagsins. Samþykkt var að leggja fram á næsta fundi lista yfir fasteignir Faxaflóahafna og jafnframt samþykkti hafnarstjórn að fá verðmat á Hafnarhúsið við Tryggvagötu og Grandagarð 14. MYNDATEXTI: Reykjavíkurhöfn

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar