Hljómsveitin Soul 7

Sverrir Vilhelmsson

Hljómsveitin Soul 7

Kaupa Í körfu

Það eru ekki margar hljómsveitir á Íslandi sem spila svokallaða R'n'B-tónlist en þau Katrín Ýr Óskarsdóttir og Jónas Elí Bjarnason hafa stofnað hljómsveitina Soul 7 og leggja þar með sitt af mörkum. Ingvar Örn Ingvarsson tók þau tali....Þau Katrín og Jónas leggja bæði stund á tónlistarnám við The Institute of Contemporary Music Performance í London en skólinn hefur getið af sér marga mjög þekkta tónlistarmenn, meðal annars Katie Melua og Ed O'Brien í Radiohead. Þau Katrín og Jónas hafa fengið til liðs við sig þau Davíð Jones sem mun spila á bassa, Helga Hannesson sem leikur á hljómborð, Símon Geir Geirsson sem spilar á trommur og Ingu Þyri Þórðardóttur og Kjartan Arnald Hlöðversson sem bæði syngja bakraddir. MYNDATEXTI: Bræðingur Andagiftin er sótt í blús og gömul soul-lög en einnig djass.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar