Regnbogi yfir Öxi.

Andrés Skúlason

Regnbogi yfir Öxi.

Kaupa Í körfu

Djúpavogshreppur er eitt af þeim sjávarplássum sem þarf að takast á við 30% skerðingu á þorskkvóta á næstu vikum og mánuðum. Ætla má hinsvegar að það muni taka töluverðan tíma fyrir sveitarstjórn Djúpavogshrepps að meta hve mikil áhrifin munu verða vegna þessa, en ljóst þykir að hafnarsjóður muni m.a. verða fyrir verulegu tekjutapi. Sumarið hefur verið íbúum Djúpavogs að mörgu leyti hliðhollt, m.a. hefur ferðaþjónustan blómstrað í sveitarfélaginu og hefur alls staðar mælst aukning milli ára meðal ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Segja má að bærinn hafi verið iðandi af lifi í allt sumar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar