Karen Ýr Þórarinsdóttir

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Karen Ýr Þórarinsdóttir

Kaupa Í körfu

UNG stúlka frá Ólafsvík hefur síðustu daga þurft að gista á heimilum ýmissa vina og vandamanna á höfuðborgarsvæðinu en hún er heimilislaus. Hún taldi sig hafa skrifað undir leigusamning um stúdentaíbúð hjá Keili en fékk þau svör við afhendingu að hún fengi ekki íbúðina vegna aldurs. Karen Ýr Þórarinsdóttir er 16 ára gömul en í úthlutunarreglum Keilis er tilgreint að einungis nemendur eldri en 20 ára geti fengið úthlutaða íbúð. Umsókn Karenar fór hins vegar í gegnum umsóknarferli Keilis og þann 24. júlí fékk hún tölvuskeyti þar sem henni var úthlutað tiltekinni íbúð. MYNDATEXTI: Iðnskólanemi - Karen Ýr var synjað um íbúð hjá Keili sem hún taldi sig vera búna að semja um leigu á.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar