Mótorhjólafeðgar

Sigurður Mar Halldórsson

Mótorhjólafeðgar

Kaupa Í körfu

Afinn á mótorhjóli með syninum og barnabarni "ÉG ÁTTI skellinöðru þegar ég var ungur. Ég hef ekki verið á hjóli síðan, en fyrir þremur árum skildi sonur minn eftir hjólið sitt í Reykjavík. Ég setti það skilyrði að hann skildi lykilinn eftir líka. Ég fór að fikta með hjólið og áður en hann sótti það var ég búinn að fá mér annað. Þetta er smitandi sport. Þegar menn eru komnir á þennan aldur hafa þeir bara gott af því að verða krakkar eða unglingar aftur," sagði Guðmundur Gestsson sem nú ferðast um á mótorhjóli ásamt syni sínum, Daníel, og 8 ára barnabarni, Guðmundi Smára. Sjálfur er hann 68 ára.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar