Alan Jones

Alan Jones

Kaupa Í körfu

MARGS ER að minnast frá þátttöku Alans Jones í sjónvarpsþættinum X-Factor. Hæfileikar hans á söngsviðinu eru ótvíræðir enda vötnuðu Einar Bárðarson og Halla Vilhjálmsdóttir músum þegar hann var kosinn úr keppninni. Alan hefur búið hér á landi í fjögur ár. "Ég bjó áður í Kaliforníu en ákvað að flytja hingað þar sem ég taldi það öruggara umhverfi fyrir börnin mín að alast upp í. Þar eru barnsrán meðal annars tíð svo okkur fannst betra að flytja okkur um set. Ég hafði heimsótt Ísland nokkrum árum áður svo við ákváðum að koma hingað," segir Alan. MYNDATEXTI: Mjúkur - Alan er maður söngelskur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar