Deilt um Kársnesið

Deilt um Kársnesið

Kaupa Í körfu

Mikill hiti var í bæjarbúum í Kópavogi sem mættu á íbúafund samtakanna Betri byggð á Kársnesi sem haldinn var í gærkvöldi. Fundurinn var haldinn vegna framtíðarskipulags Kársness en rammaskipulag gerir ráð fyrir stækkun Kópavogshafnar, atvinnuhúsnæði verði byggt upp á landfyllingu og íbúum fjölgi. Arna Harðardóttir, formaður samtakanna, hélt framsögu og gagnrýndi m.a. að engar tilraunir hefðu verið gerðar til að fá álit íbúa og kjósenda í vesturbæ Kópavogs. MYNDATEXTI: Troðfullt - Fjölmargir íbúar Kópavogsbæjar létu í sér heyra á fundinum í gærkvöldi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar