Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fær bláa tunnu

Friðrik Tryggvason

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fær bláa tunnu

Kaupa Í körfu

VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri tók í gær við fyrstu tunnunni hjá Reykjavíkurborg sem ætluð er fyrir pappírsúrgang á heimili sínu í Breiðholti. Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfisráðs, segir bláu tunnurnar lið í Grænu skrefunum, umhverfisátaki Reykjavíkurborgar. Aukin endurvinnsla sé hluti af þeim og "fyrsta skrefið í því er að reyna að fá fólk til þess að skilja dagblaðapappírinn frá öðru sorpi. Menn hafa því miður ekki verið nógu duglegir við það," segir Gísli Marteinn. Hingað til hefur verið hægt að skila dagblöðunum í Sorpu eða í grenndargáma. MYNDATEXTI: Endurvinnsla - Um 300 manns hafa pantað bláa tunnu eins og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri fékk í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar