Reykjavíkurmaraþon Glitnis

Reykjavíkurmaraþon Glitnis

Kaupa Í körfu

KENÝAMENN voru sigursælir í Reykjavíkurmaraþoninu í gær en Simon Tonui kom fyrstur í mark í heilu maraþoni eftir tvo tíma og 24 mínútur. Annar varð landi hans Joseph Mbithi en hann kom í mark aðeins 23 sekúndum síðar. Jiri Wallenfels frá Tékklandi náði í þriðja sæti á tímanum tvær klukkustundir, 36 mínútur og 39 sekúndur. Ekki lágu upplýsingar fyrir um það hver hefði verið fyrstur Íslendinga í mark, né heldur fyrsta konan þegar Morgunblaðið fór í prentun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar