Gosbrunnur í Reykjanesbæ

Einar Falur Ingólfsson

Gosbrunnur í Reykjanesbæ

Kaupa Í körfu

GOSBRUNNURINN á Hafnargötunni í Keflavík byrjaði að gjósa í gær, öllum að óvörum. Gárungar höfðu sett sápu í brunninn í fyrrinótt og lét hann sitt ekki eftir liggja enda samkeppnin við Geysi hörð. Börnin hlupu til og léku sér í froðunni sem glitraði í kvöldsólinni. Lögreglan í Keflavík segir brunninn þó varasaman, járnbútar standi upp úr botni hans og þar geti verið hættulegt fyrir unga hjólabrettakappa að detta.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar