Mývatnssveit - Réttað var á Hlíðarrétt

Birkir Fanndal Haraldsson

Mývatnssveit - Réttað var á Hlíðarrétt

Kaupa Í körfu

Fjölmenni kom saman í Hlíðarrétt um helgina FYRSTU fjárréttirnar fóru fram í sveitum landsins um helgina en réttir standa yfir næsta mánuðinn. Flestar þeirra verða þó ekki fyrr en aðra eða þriðju helgina í september. Í gærmorgun var réttað í Hlíðarrétt í Mývatnssveit og var veður með besta móti. Til réttar komu rétt um 2.000 fjár og fer því heldur fækkandi, eins og víðast hvar, en féð er fallegt á lagðinn og sýnist koma þokkalega vænt af fjalli. Mikill mannfjöldi var í réttinni enda naut fólkið stundarinnar og réttarstemningarinnar. Gangnamenn fengu prýðisveður og allt hefur gengið svo sem í sögu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar