Árni Pétur Jónsson

Brynjar Gauti

Árni Pétur Jónsson

Kaupa Í körfu

VODAFONE áformar uppsetningu á nýju langdrægu GSM-farsímakerfi um allt land. Er kerfinu ætlað að tryggja sjófarendum og ferðalöngum á hálendinu öruggt samband með GSM-farsímum í stað NMT. Fyrstu sendarnir verða settir upp á Reykjanesskaganum í október nk. og á uppbyggingunni að vera lokið um mitt næsta ár. Alls er um 40 senda að ræða. Árni Pétur Jónsson, forstjóri Vodafone, segir ljóst að þetta sé mikil fjárfesting fyrir fyrirtækið en upplýsir ekki um nákvæman kostnað. Undirbúningur verkefnisins er á lokastigi og er búið að velja sendunum stað meðfram strandlengjunni og á hálendinu. MYNDATEXTI: Árni Pétur Jónsson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar