Setning Ljósanætur

Helgi Bjarnason

Setning Ljósanætur

Kaupa Í körfu

Reykjanesbær | Lagið Meistari Jakob var sungið á mörgum tungumálum við setningu menningar- og fjölskylduhátíðarinnar Ljósanætur í gær. Var það gert til að leggja áherslu á það að Reykjanesbær er fjölmenningarlegt samfélag þar sem fólk af ýmsum þjóðernum býr í sátt og samlyndi. Setningarathöfn Ljósanætur fór fram við Myllubakkaskóla í Keflavík fyrir hádegið í gær. Þangað komu í skrúðgöngum börn úr öllum grunnskólum bæjarins og leikskólum, auk annarra gesta. MYNDATEXTI: Fjölmenning - Börn úr grunnskólum og leikskólum Reykjanesbæjar slepptu marglitum blöðrum til himins við setningu Ljósanæturhátíðarinnar í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar