Brúarhlaup á Selfossi

Sigurður Jónsson

Brúarhlaup á Selfossi

Kaupa Í körfu

Selfoss | Brúarhlaup Selfoss fer fram nk. laugardag. Að venju er boðið upp á 5 og 10 km hjólreiðar og 2,5 km, 5 km, 10 km hlaup og hálfmaraþon. Það verða allir ræstir á Ölfusárbrú, hjólreiðar kl. 11, hálfmaraþon kl. 11.30 og aðrar vegalengdir kl. 12. Allar hlaupa- og hjólavegalengdir eru með tímatöku og eru leiðirnar löggildar, teknar út af viðurkenndum aðila að sögn Helga S. Haraldssonar, formanns frjálsíþróttadeildar Selfoss, sem sér um hlaupið. Hann sagði einnig að nú væru farnar nýjar leiðir í hlaupinu og nauðsynlegt fyrir hlauparana að kynna sér þær vel fyrir hlaupið. MYNDATEXTI: Leiðin - Helgi S. Haraldsson merkir nýja hlaupaleið Brúarhlaupsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar