Þorgerður Katrín afhendir viðurkenningar til háskóla

Friðrik Tryggvason

Þorgerður Katrín afhendir viðurkenningar til háskóla

Kaupa Í körfu

Háskólarnir fá umsagnir frá nefnd erlendra sérfræðinga Veitti viðurkenningar ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra veitti íslenskum háskólum viðurkenningar í fyrsta sinn í gær. Viðurkenningarnar byggjast á lögum um háskóla, sem sett voru á síðasta ári og er markmiðið með þeim að tryggja gæði skólanna. Skilyrði þeirra lúta m.a. að fjárhagslegu sjálfstæði, hæfi starfsfólks, inntaki og framkvæmd náms og uppbyggingu prófgráða. Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskólinn tóku við viðurkenningum að þessu sinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar