Jörundur Ragnarsson

Jörundur Ragnarsson

Kaupa Í körfu

LEIKLISTARBAKTERÍAN hefur eflaust alltaf blundað í mér en ég hef aldrei haft mig mikið í frammi og yfirleitt verið frekar hlédrægur," segir leikarinn Jörundur Ragnarsson sem útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands í fyrravor. "Í skólanum hvarflaði stundum að mér að hætta þessu og þá aðallega út af því að það fylgir leikurum að þurfa að koma mikið fram og það var alls ekki auðvelt fyrir mig. En leiklist er gefandi og skapandi og ég fann mig í þessu en það tók mig langan tíma í skólanum að líða vel í því sem ég var að gera."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar