Innlit

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Innlit

Kaupa Í körfu

Tíkin Jökla er eins og lítill ísbjörn þar sem hún skokkar um í frelsinu umhverfis Lynghól, lítinn bæ í Heiðmörkinni. Kristín Heiða Kristinsdóttir heimsótti mæðgur sem búa í sælureit við borgarmörkin. Þegar ég var átján og nítján ára bjó ég tvö sumur í litlum bústað sem stóð hér við hliðina á Lynghóli og ég hafði þann starfa að vera fjárgæslumaður borgarinnar. Ég sat ekki á peningahrúgu heldur fór ég ríðandi um á hestunum mínum og stuggaði kindum burt af þeim svæðum sem þær máttu ekki vera á og kom þeim aftur á heiðina. Þessi smalavinna var mjög skemmtileg og ég tengdist þessum stað hér sterkum böndum. Eiginlega skaut ég niður rótum hér strax þá," segir Unnur Jökulsdóttir rithöfundur sem býr í litlu gömlu sumarhúsi við Elliðavatn. MYNDATEXTI Unnur og Alda fara oft með tíkinni Jöklu niður að vatni og koma við á bryggjunni við Lynghól.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar