Ísland - Belgía 0:0

Ísland - Belgía 0:0

Kaupa Í körfu

VIÐ vorum miklu betri og þá sérstaklega í síðari hálfleik og það vantaði bara að skora og nýta færin," sagði Birkir Bjarnason, leikmaður U21 árs landsliðs Íslands í knattspyrnu, í gær eftir markalaust jafntefli gegn Belgum á Akranesvelli. Þetta var þriðji leikur Íslands í riðlakeppni Evrópumótsins og er liðið með 2 stig eftir tap gegn Kýpur á heimavelli og 2:2 jafntefli gegn Slóvökum ytra. "Þetta er ekki eins og við stefndum að og að mínu mati ættum við að vera með 9 stig eftir þessa þrjá leiki," bætti Birkir við.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar