Valur - KR

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Valur - KR

Kaupa Í körfu

MIKIL spenna ríkir fyrir leik KR og Vals sem mætast í næstsíðustu umferð Landsbankadeildar kvenna í knattspyrnu á KR-vellinum á morgun. Þetta er nánast hreinn úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn en liðin eru jöfn að stigum fyrir leikinn í dag. Markatala Vals er hins vegar betri sem munar 15 mörkum og því fara Valskonur langt með að tryggja sér titilinn annað árið í röð með jafntefli en í lokaumferðinni tekur Valur á móti Þór/KA en KR sækir Keflavík heim MYNDATEXTI Margrét Lára Viðarsdóttir, markahrókur Valsmanna, sækir hér að marki KR-inga í fyrri leik liðanna – í Laugardal, 0:0. KR-ingarnir Alicia Maxine Wilson, sem hefur leikið vel með vesturbæjarliðinu í sumar, og Embla Grétarsdóttir eru til varnar

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar