KR - Valur

KR - Valur

Kaupa Í körfu

NORÐANSTREKKINGUR setti svip sinn á leik Vals og KR í Landsbankadeild kvenna í Vesturbænum í gærkvöldi enda skiptust liðin á um að sækja með rokið í bakið sinn hálfleikinn hvort. Engu að síður var barist af krafti því þar sem liðin voru langefst og jöfn að stigum myndi sigur nánast tryggja Íslandsmeistaratitil. Það gerði síðan gæfumuninn að Valskonum tókst betur upp með færin enda með markadrottninguna Margréti Láru Viðarsdóttur innan sinna raða, en hún skoraði tvö af mörkum liðsins í 4:2-sigri og bætti um leið eigið markamet. MYNDATEXTI Skrefi nær titlinum Leikmenn Vals höfðu ástæðu til þess að fagna í leikslok gegn KR í gær enda er liðið einu skrefi frá Íslandsmeistaratitlinum eftir 4:2-sigurinn gegn KR.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar