Fjölnir - Haukar 4:3

Árni Torfason

Fjölnir - Haukar 4:3

Kaupa Í körfu

Nú er nýlokið þriðja leiknum í 8-liða úrslitum VISA-bikars karla í knattspyrnu. Fjölnir bar sigurorð af Haukum, 4:3, í miklum baráttuleik, en Haukar léku manni færri síðasta hálftímann. Gunnar Már Guðmundsson skoraði tvö marka Fjölnis og þeir Pétur Georg Markan og Tómas Leifsson sitt markið hvor. Ásgeir Ingólfsson og Hilmar Geir Eiðsson skoruðu fyrir Hauka, auk þess sem Fjölnismenn gerðu eitt sjálfsmark. MYNDATEXTI Sigursælir Fjölnismenn hafa átt góðu gengi að fagna í sumar, bæði í 1. deildinni og bikarkeppninni, og þeir mæta Fylki í kvöld í undanúrslitum bikarsins. Stærsti leikurinn í sögu þessa unga félags úr Grafarvogi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar