Djass

divogdjass

Djass

Kaupa Í körfu

DÍVAN og djassmaðurinn koma fram á tónleikum í Laugarborg í Eyjafirði á morgun kl. 15, en bak við það heiti eru Sólrún Bragadóttir sópransöngkona og Sigurður Flosason saxófónleikari. Á tónleikunum, sem marka upphaf tónleikvetrar Laugarborgar, hljóma sígild íslensk sönglög í útsetningum flytjenda. Vetrardagskrá Laugarborgar hefur frá upphafi hafist með svokölluðum kaffitónleikum og verður svo einnig nú. Að tónlistarflutningnum loknum reiða kvenfélagskonur í Iðunni fram kaffiveitingar. MYNDATEXTI Sigurður og Sólrún

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar