Tennishöllin Kópavogi

Tennishöllin Kópavogi

Kaupa Í körfu

Tennisíþróttin á Íslandi hefur átt svolítið erfitt uppdráttar hér á landi sökum aðstöðuleysis. Nýja Tennishöllin í Kópavogi boðar þó breytta tíma en hún var opnuð 20. maí síðastliðinn að Dalsmára. Tennishöllin er þriggja valla tennishús og uppfyllir öll skilyrði til að halda alþjóðleg mót í tennis. "Það er mikill áhugi fyrir íþróttinni á Íslandi en aðstöðuleysið hefur þó hamlað henni. Nú erum við þó búin að bæta úr og ég held að eftirspurnin muni elta framboðið því áhuginn er vissulega til staðar," segir Jónas Páll Björnsson, framkvæmdastjóri Tennishallarinnar, og býst hann við mikilli aðsókn á vellina í vetur. MYNDATEXTI Í Tennishöllinni er góð aðstaða til þess að stunda tennis en áhuginn fyrir íþróttinni er mikill hér á landi en aðstöðuleysið hefur hingað til hamlað þróun

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar