Óeirðasveit lögreglu höfuðborgarsvæðisins á æfingu

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Óeirðasveit lögreglu höfuðborgarsvæðisins á æfingu

Kaupa Í körfu

LÖGREGLUMENN víðs vegar að á landinu hafa undanfarna daga verið í framhaldsþjálfun í mannfjöldastjórnun. Á námskeiðinu eru lögreglumenn þjálfaðir til að takast á við allt á milli tiltölulega rólegra mótmæla og fjölmennra óeirða. Þegar ljósmyndara bar að garði voru lögreglumennirnir að fást við óstýriláta mótmælendur er leiknir voru af nemendum í Lögregluskólanum. Eftir að hafa kastað spýtum í átt að lögreglunni gerðu nokkrir óeirðaseggir aðsúg að lögreglu og spörkuðu í skildi hennar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar