Sakborningar / fíkniefnasmygl / skúta / Fáskrúðsfjörður

Sakborningar / fíkniefnasmygl / skúta / Fáskrúðsfjörður

Kaupa Í körfu

FIMM karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald – flestir til 18. október nk. – fyrir aðild sína að umfangsmiklum innflutningi fíkniefna til landsins. Þeir eru allir á þrítugs- og fertugsaldri. Auk þess voru tveir Íslendingar handteknir í Kaupmannahöfn og einn í Noregi. Þeir verða leiddir fyrir dómara í dag. Rannsóknin, sem líklegt er að staðið hafi yfir frá síðasta ári, teygði anga sína til fimm Evrópulanda utan Íslands, og var að miklu leyti unnin í samvinnu við evrópsku löggæslustofnunina Europol. MYNDATEXTI Rannsóknarlögreglumenn frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu leiða einn hinna handteknu inn í dómhús héraðsdóms í gærkvöldi þar sem hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar