Við Tjörnina

Við Tjörnina

Kaupa Í körfu

HVER árstími hefur sinn sjarma og víst er að haustið með allri sinni litadýrð snertir streng í mörgum. Á sumrin ríkir græni liturinn á litakortinu og í sumar var fjölbreytni græna litarins óvenju mikil. Kannski hið góða veður hafi átt sinn þátt í því. Eftir sumar kemur haust og gróður fölnar. Þá tekur við skemmtilegur tími þegar allir grænu litir sumarsins breytast í ýmsa liti; gulan, rauðan, appelsínugulan og jafnvel fjólubláan. Þessi ungi maður gengur ákveðinn eftir bakka Tjarnarinnar í Reykjavík. Ósagt skal þó látið hvert ferðinni er heitið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar