Menningarráðið opnar skrifstofu

Jón Sigurðsson

Menningarráðið opnar skrifstofu

Kaupa Í körfu

Skagaströnd | Guðrún Helgadóttir, formaður menningarráðs Norðurlands vestra, opnaði í gær skrifstofu ráðsins á Bjarmanesi á Skagaströnd. Að sögn Guðrúnar er nú hringnum lokað í gerð samninga milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu menningarstarfs á landsbyggðinni. Samningi þessum er ætlað að beina stuðningi ríkisins og sveitarfélaga í einn farveg jafnframt því að tryggja sem best frumkvæði og áhrif sveitarfélaganna við forgangsröðun verkefna. Starfssvæði menningarráðsins er sveitarfélögin í Húnavatnssýslum og Skagafirði. Hlutverk þess er meðal annars að standa fyrir þróunarstarfi í menningarmálum og úthluta fjármagni til menningarverkefna MYNDATEXTI Ingibergur Guðmundsson menningarfulltrúi og Guðrún Helgadóttir formaður menningarráðs við opnun skrifstofunnar á Skagaströnd

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar