Hið íslenska reðasafn

Hafþór Hreiðarsson

Hið íslenska reðasafn

Kaupa Í körfu

Ég á bæði forhúð af fertugum Íslendingi og eistu úr fimmtugum Íslendingi, en mig vantar ennþá það sem þar á að vera á milli," segir Sigurður Hjartarson, safnstjóri Hins íslenska reðasafns á Húsavík sem fagnaði tíu ára afmæli sínu hinn 23. ágúst síðastliðinn. "Þetta stendur þó til bóta því sá mæti ferðafrömuður og kvennamaður Páll Arason, sem nú er orðinn 92 ára og búsettur er á Akureyri, hefur ánafnað safninu tólin sín að sér gengnum. Páli er afskaplega mikið í mun að limurinn varðveitist með nokkurri reisn þrátt fyrir að hann viðurkenni nú orðið að eintakið sé farið að visna örlítið og sé vart sýningarhæft. Engu að síður höldum við Páll okkur við þessa ákvörðun. Mér skilst nefnilega að hægt sé að bjarga þessu við með því að taka hann volgan, láta honum blæða vel út, dæla síðan í hann vökva og reisa hann við. MYNDATEXTI Safnið hýsir nú 257 alvöru eintök af 90 tegundum spendýra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar