Gróður og stofnanir

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Gróður og stofnanir

Kaupa Í körfu

UMHVERFI sjúkrastofnana hér á landi er verulega ábótavant að mati Margrétar Backman landslagsarkitekts og Ingu Helgu Sveinsdóttur B.Sc. í umhverfisskipulagi. Þær hafa báðar kannað áhrif gróðurs í umhverfi sjúkrastofnana en garðar og gróður virðast hafa jákvæð áhrif á bata sjúklinga. Árið 1984 gerði Bandaríkjamaðurinn Roger Ulrich rannsókn þar sem í ljós kom að sjúklingahópar sem gengist höfðu undir sams konar aðgerðir og horfðu annars vegar út á steinvegg og hins vegar út í garð náðu misfljótt bata. Þeir sem nutu garðútsýnisins þurftu minni verkjalyf, voru rólegri og útskrifuðust fyrr en þeir sem "nutu" steinveggjarins. "Samkvæmt skipulagi nýja hátæknisjúkrahússins er ráðgert að hafa geðdeildir í fjögurra hæða byggingu við Hringbraut. Erlendis er talið best að fólkið geti verið sem allra næst náttúrunni, enda hefur það lækningagildi að mati flestra," segja Inga Helga og Margrét í Morgunblaðinu í dag

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar