Soffía og kettirnir

Soffía og kettirnir

Kaupa Í körfu

Hann Guðmundur gamli? Sem flutti úr miðbænum upp í Grafarvog?" spyr Soffía Egilsdóttir skellihlæjandi þegar blaðamaður leitast eftir "viðtali" við köttinn sem fór í hungurverkfall þegar hann þurfti allt í einu að deila heimili með hinum loðna úthverfaketti Pílatusi, sem er ekki einu sinni ársgamall. Hann Guðmundur, 11 ára, undi sér nefnilega vel í miðbæ Reykjavíkur og er að sögn eigenda týpísk miðbæjarrotta sem fór út á lífið um helgar, var dekstraður heima fyrir á milli þess sem hann hékk í Krambúðinni á Skólavörðustíg, því nefndur krambúðarkötturinn. Hin takmarkaða matarlyst í "úthverfinu" Grafarvogi hrjáði Guðmund í 2-3 vikur en hann "er sko farinn að éta og kominn með þvílíka matarást á mér", útskýrir Soffía. MYNDATEXTI Guðmundur gamli kallar ekki allt ömmu sína, enda lífsreyndur miðbæjarköttur, sem varð þó afar óhress með breytt umhverfi: "Ömmuhjartað í mér grét í þessari krísu," segir kattavinurinn Soffía Egilsdóttir

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar