Veisla í boði borgarstjóra

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Veisla í boði borgarstjóra

Kaupa Í körfu

BORGARSTJÓRINN í Reykjavík Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Guðrún Kristjánsdóttir eiginkona hans, buðu til kvöldverðarhlaðborðs í Listasafni Reykjavíkur að lokinni tendrun friðarljóssins "Imagine Peace Tower" í Viðey í gærkvöldi. Þar voru að sjálfsögðu mætt Yoko Ono og sonur hennar Sean auk Ringo Starr, Oliviu Harrison og um 500 aðrir gestir sem fögnuðu þessum langþráða áfanga. Af máli manna í boðinu mátti ekki annað skilja en listaverkið hefði uppfyllt allar þær væntingar sem gerðar voru til þess, og meira til, enda málstaðurinn góður og ljósið fagurt. MYNDATEXTI Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi og Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins, voru að vonum ánægð með Friðarsúluna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar