Ekkert varir að eilífu

Skapti Hallgrímsson

Ekkert varir að eilífu

Kaupa Í körfu

FEGURÐ haustsins er viðbrugðið, en hún er tímabundin; litadýrðin varir því miður ekki mjög lengi. Umhverfi styttunnar af Jóni Sveinssyni, Nonna, í Innbænum var ægifagurt fyrir tæpum hálfum mánuði – eins og sýnt var fram á með mynd hér í blaðinu – en hversdagsgráminn hafði aftur tekið völdin í gær. Skærgulu og rauðu laufblöðin á trénu voru horfin og það eina sem lífgaði upp á tilveruna voru fáein reyniber sem fuglarnir hafa ekki enn étið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar