Hvalreki - Þvottárskriður

Andrés Skúlason

Hvalreki - Þvottárskriður

Kaupa Í körfu

ANDARNEFJU rak upp í sendna fjöru rétt austan við Þvottárskriður. Er þetta í annað skipið á stuttum tíma sem hval rekur á land í Djúpavogshreppi. Um er að ræða átta metra langa kvenkyns andarnefju. Dýrið er örlítið farið að láta á sjá enda var mávfuglinn byrjaður að kroppa í hræið. Björn Hafþór Guðmundsson og Jens Albertsson fundu hræið. MYNDATEXTI: Hvalreki Björn Hafþór Guðmundsson og Jens Albertsson við hræið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar