Ísland - Lettland 2:4

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Ísland - Lettland 2:4

Kaupa Í körfu

Lettar skoruðu fjögur útsölumörk * Ljósið í myrkrinu var tvö mörk Eiðs Smára ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu féll illa á prófinu í síðasta heimaleiknum í undankeppni Evrópumótins þegar Lettar komu, sáu og sigruðu slakt, ósamstillit og óagað lið Íslendinga, 4:2. MYNDATEXTI: Niðurlútir Það er ekki á hverjum degi sem leikmaður sem skorar tvö mörk í landsleik og setur nýtt glæsilegt landsleikjamet, gangi niðurlútur að velli. Það var hlutskipti Eiðs Smára Guðjohnsen, fyrirliða Íslands á Laugardalsvellinum. Brynjar Björn Gunnarsson kemur í kjölfar fyrirliðans, og var einnig vonsvikinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar