Undirgöng hjá Dalvegi undir Reykjanesbraut

Brynjar Gauti

Undirgöng hjá Dalvegi undir Reykjanesbraut

Kaupa Í körfu

Kópavogur | Þeir sem leið hafa átt um göngustíg sem liggur frá Kópavogsdal, undir Dalveg og áfram undir Reykjanesbraut hafa væntanlega orðið varir við framkvæmdir sem nú standa yfir þar sem göngustígurinn liggur undir Reykjanesbrautina. Þónokkurt rask er á umhverfinu og vatn fossar upp úr brunni. Samkvæmt upplýsingum frá Kópavogsbæ er verið að tengja hinn enda vatnslagnarinnar sem upptök á í Heiðmörk. Verið er að skola út lögnina, sem skýrir fossandi vatnið, áður en hún verður tengd við Kópavog.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar