Toys'R' Us

Brynjar Gauti

Toys'R' Us

Kaupa Í körfu

VIÐSKIPTAVINIR leikfangaverslunarinnar Toys'R' Us í Kópavogi hafa margir hverjir tekið eftir því að hátt hlutfall af starfsfólki verslunarinnar kemur frá nágrannaríkjum Íslands, þ.e. Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Er þar ekki um innflutt vinnuafl að ræða, alla vega ekki til lengri tíma, því þar eru á ferð verslunarstjórar og aðstoðarverslunarstjórar frá Toys 'R' Us-verslunum á Norðurlöndunum. Er þeim uppálagt að leggja línurnar í afgreiðslu leikfanga, en einnig að aðstoða, enda hefur umferð um búðina verið með eindæmum fyrstu tvo dagana. Að sögn starfsmanns Toys 'R' Us hefði opnunin varla gengið upp án starfsmannanna, sem eru á þriðja tug, en þeir halda af landi brott eftir helgi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar