Hönnunarsýning Laugardalshöll

Hönnunarsýning Laugardalshöll

Kaupa Í körfu

SÝNINGIN Hönnun + heimili hófst í Laugardalshöll í gær en þar er ætlunin að bjóða fagfólki sem og almenningi að kynna sér allt það nýjasta í vöru og þjónustu fyrir hönnun heimila á einum stað. Á sýningunni gefst íslenskum hönnuðum tækifæri til að kynna sig fyrir fagaðilum, framleiðendum, fyrirtækjum og söluaðilum sem og almenningi. Sérstakt BRUM-svæði verður á staðnum sem er verslun tileinkuð íslenskum hönnuðum. Þar munu 30 íslenskir hönnuðir, bæði nýútskrifaðir sem og vel þekktir, kynna og selja vörur sínar. MYNDATEXTI Dáðst að vörum á Brum básnum en Brum básinn vakti mikla athygli.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar