Kynningarfundur í Prag

Halldór Kolbeins

Kynningarfundur í Prag

Kaupa Í körfu

Farþegafjöldi þrefaldast á næstu árum LUGMARKAÐURINN í Mið-Evrópu vex ört og þar liggja gríðarmikil tækifæri sem Icelandair Group hyggst notfæra sér, meðal annars með hinum nýlegu kaupum á tékkneska flugfélaginu Travel Service. Þetta kom fram á kynningarfundi félagsins í Prag en auk Mið-Evrópu eru Kína og Rússland einnig í kortunum hjá samstæðunni. Ekki er heldur loku fyrir það skotið að komið verði upp beinu flugi frá Íslandi til Tékklands, og Lettlands. MYNDATEXTI: Tékkland Sigþór Einarsson frá Icelandair, Roman Vik, framkvæmdastjóri Travel Service, og Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, á fundinum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar