Vatnsveður í Reykjavík

Vatnsveður í Reykjavík

Kaupa Í körfu

SUÐAUSTANSTORMUR gekk yfir suðvesturhorn landsins í gær og færði sig austur með suðurströndinni seint í gærkvöldi. Á höfuðborgarsvæðinu var feikilega hvasst án þess þó að afleiðingarnar yrðu alvarlegar. Nokkuð var um fjúkandi lausamuni og lausar þakplötur. Lögreglan sinnti nokkrum óveðursútköllum og fékk hjálparsveit skáta í Garðabæ til aðstoðar. Hjörtur Sigurpálsson frá stífluþjónustunni Spíssum var meðal þeirra sem mættu á vettvang til að fást við vatnselg við verslunarmiðstöðina í Mjódd í gærkvöldi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar