Bjargvætturinn Arnar Jónsson

Andrés Skúlason

Bjargvætturinn Arnar Jónsson

Kaupa Í körfu

Örþreyttur förufálki slæddist um borð í línuveiðarann Jóhönnu Gísladóttur GK á miðunum suðaustur af landinu í slagveðursrigningu fyrr í vikunni. Hugulsamir skipverjar veittu hinum dasaða fugli aðhlynningu og tóku hann með sér í land á Djúpavogi, þar sem fuglinn er nú í endurhæfingu áður en honum verður sleppt. MYNDATEXTI: Bjargvættur Arnar Jónsson, skipverji á Jóhönnu Gísladóttur GK, með fálkann þreytta.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar